Von á hvítum jólum

Útlit er fyrir hvít jól um land allt.
Útlit er fyrir hvít jól um land allt. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Í dag verður norðaustanátt með éljagangi eða snjókomu á Norður- og Austurlandi en bjart með köflum suðvestanlands, samkvæmt spá Veðurstofu Íslands.

Víða verður 0 – 5 stiga frost og hvassast verður norðvestan til. Það bætir ekki í snjókomu á höfuðborgarsvæðinu næstu daga og áfram verður frost.

Búist er við hvítum jólum, en síðan leiðindaveðri á öðrum og þriðja í jólum um nær allt land með austan og norðaustan stormi eða roki, snjókomu og ófærð. Mesta snjókoman verður vestan- og austanlands. Draga mun úr henni 28. desember, en áfram verður hvasst og éljagangur austanlands.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert