Vitjuðu sinna 13 milljóna

Eurojackpot.
Eurojackpot.

„Yndisleg hjón á besta aldri komu í höfuðstöðvar Íslenskrar getspár á Þorláksmessu og vitjuðu vinnings í EuroJackpot,“ segir í tilkynningu frá Íslenskri getspá. Hjónin voru með allar fimm aðaltölurnar réttar og hlutu því þriðja vinning og fá greiddar 13 skattfrjálsar milljónir,

Í tilkynningunni segir einnig að hjónin hafi haft á orði að það væri virkilega ljúft að vitja vinningsins í Laugardalinn á þessum góða degi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert