Eldur kviknaði í uppþvottavél

Rétt áður en klukkan sló sex í gærkvöldi, aðfangadagskvöld, kviknaði í uppþvottavél í húsi í Hafnarfirði.

Er lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kom á svæðið var búið að slökkva eldinn. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar eru uppþvottavélin ónýt og sömuleiðis innrétting við uppþvottavélina. Þá var reykur og reykjarlykt um alla íbúðina.

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sá um að reykræsta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert