Ók ölvuð á tvo bíla

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Rétt eftir kl. 18 í gærkvöldi, aðfangadagskvöld, var kona handtekin á heimili  í austurborg Reykjavíkur. Hún er grunuð um ölvun við akstur og umferðaróhapp, þ.e. að hafa ekið utan í tvær bifreiðar. 

Konan var vistuð i fangageymslu fyrir rannsókn málsins

 Um kl. 22.15 í gærkvöldi hafði lögreglan á  höfuðborgarsvæðinu afskipti af ökumanni þar sem hann var búinn að skemma bifreið sína í Ármúla. Ökumaðurinn er grunaður um ölvun við akstur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert