Tíu jólabörn komin í heiminn

Tíu jólabörn hafa komið í heiminn það sem af er …
Tíu jólabörn hafa komið í heiminn það sem af er þessum jólum. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Tíu börn hafa fæðst á fæðing­ar­deild Land­spít­al­ans yfir jól­in að aðfangadeginum meðtöldum, sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá lækni á fæðingardeildinni.

Fimm börn fædd­ust í gær, aðfangadag, og fæddust þau öll áður en jólin voru hringd inn klukkan sex. Fimm til viðbótar hafa fæðst það sem af er jóladegi. Heilsast mæðrum og börnum vel að sögn læknis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert