Tveir stórir skjálftar í Bárðarbungu

mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Tveir stærstu jarðskjálftarnir í Bárðarbungu frá því um hádegisbilið í gær mældust 4,6 að stærð. Annar þeirra varð klukkan 14:49 í gærdag og hinn klukkan 7:23 í morgun. 

Þrír aðrir skjálftar voru yfir 4 að stærð og 12 skjálftar á stærðarbilinu 3 til 4. Samtals mældust rúmlega 40 jarðskjálftar i Bárðarbungu. Í kvikuganginum voru 4 skjálftar, allir minni en 1 stig.  Við Tungnafellsjökul voru 7 skjálftar, sá stærsti 2,5 að stærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert