Banaslys ekki færri frá skráningu 1966

Banaslysin í umferðinni í ár eru færri en nokkru sinni …
Banaslysin í umferðinni í ár eru færri en nokkru sinni frá 1966. mbl.is/Árni Sæberg

Það sem af er ári hafa fjórir látist í þremur banaslysum í umferðinni og hafa þau ekki verið færri síðan markviss skráning umferðarslysa hófst hér á landi, eða árið 1966.

Árið 1968, þegar skipt var yfir í hægri umferð, létust sex en mest hafa látist 37 á einu ári, árið 1977, að því er fram kemur í fréttastkýringu um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.

„Við stefnum að sjálfsögðu alltaf að því að enginn látist í umferðinni og fjögur banaslys eru fjórum of mikið. Engu að síður má alveg vekja athygli á þessum árangri í umferðaröryggismálum og vonandi náum við að upplifa ár þar sem ekkert banaslys verður. Það er alltaf okkar markmið,“ segir Ágúst Mogensen, rannsóknarstjóri umferðarslysa hjá Rannsóknarnefnd samgönguslysa, um þróun banaslysa í umferðinni.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert