Flugferðum aflýst vegna veðurs

Fjölmörgum flugum Icelandair hefur verið aflýst.
Fjölmörgum flugum Icelandair hefur verið aflýst. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Fjölmörgum flugferðum til og frá Keflavíkurflugvelli hefur verið frestað eða aflýst vegna veðurs á mánudag. Sex ferðum Icelandair sem áttu að leggja af stað frá Bandaríkjunum til Keflavíkur í kvöld hefur verið aflýst sem og ellefu ferðum til Evrópu í fyrramálið. 

Spáð er snörpum vindhviðum, skafrenningi og slæmu skyggni á Suður- og Vesturlandi seint í kvöld og nótt. Búast má við að veðrið hafi einnig áhrif á samgöngur á vegum.

Samkvæmt facebooksíðu WOW Air mun flugfélagið fresta tveimur ferðum í fyrramálið til hádegis. Er það flug WW403 til Parísar og flug WW201 til Lundúna. 

Flug Icelandair sem hefur verið aflýst frá Bandaríkjunum og Kanada kvöld:

  • FI602 frá Toronto til Keflavíkur
  • FI644 frá Washington til Keflavíkur
  • FI670 frá Denver til Keflavíkur
  • FI630 frá Boston til Keflavíkur
  • FI680 frá Seattle til Keflavíkur
  • FI614 frá New York til Keflavíkur

Flug Icelandair sem hefur verið aflýst til og frá Evrópu á morgun:

  • FI342 / FI343 til og frá Helsinki
  • FI520 / FI521 til og frá Frankfurt
  • FI318 / FI319 til og frá Osló
  • FI306 / FI307 til og frá Stokkhólmi
  • FI430 / FI431 til og frá Glasgow
  • FI542 / FI543 til og frá París
  • FI500 / FI501 til og frá Amsterdam
  • FI440 / FI441 til og frá Manchester
  • FI204 / FI205 til og frá Kaupmannahöfn
  • FI470 / FI471 til og frá London Gatwick
  • FI450 / FI451 til og frá London
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert