Harkalegur árekstur í Hveradalsbrekku

Hellisheiði
Hellisheiði mbl.is/Rax

Einn var fluttur á sjúkrahús fyrr í dag vegna umferðarslyss sem átti sér stað efst í Hveradalsbrekku. Að sögn lögreglu er viðkomandi ekki alvarlega slasaður. 

Slysið bar að með þeim hætti að snjóruðningstæki og jeppi lentu saman. Jeppinn er mikið skemmdur sem og tönnin framan á snjóruðningstækinu. Er nú búið að loka Hellisheiðinni enda skyggni lélegt og mikill snjór og vindur. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert