Hvað á lukkudýrið að heita?

Hvað á lukkudýrið að heita?
Hvað á lukkudýrið að heita? mbl.is

Íþrótta- og ólympíusamband Íslands hefur ákveðið að efna til samkeppni um nafn á lukkudýri Smáþjóðaleikanna og leita til grunnskólabarna um hugmyndir.

Um skemmtilegan leik er að ræða og vonandi sjá flestir skólar sér fært að taka þátt í honum.
Hér fyrir neðan eru helstu reglur keppninnar og saga lukkudýrsins.

Reglur um nafnasamkeppni:

  • Þátttökurétt eiga allir 4.-7. bekkir í grunnskólum landsins.
  • Hver bekkur kemur sér saman um eitt nafn.
  • Tillögu um nafn ásamt rökstuðningi skal skilað með tölvupósti á info@iceland2015.is fyrir 5. febrúar þar sem fram kemur nafn bekkjar, skóla og ábyrgðarmanns.
  • Tekið verður tillit til rökstuðnings með nafni – þ.e. af hverju á lukkudýrið að fá tiltekið nafn.
  • Valnefnd skipuð fimm aðilum mun velja nafn á lukkudýrið úr innsendum tillögum. Ef margar tillögur koma inn með vinningsnafninu verður einn bekkur dreginn út og er sá vinningsbekkurinn.
  • Laugardaginn 21. febrúar eru 100 dagar í leikana og þá verður nafn lukkudýrsins kynnt á blaðamannafundi ásamt sigurvegara nafnasamkeppninnar – dregið þann dag ef þarf.

Vinningur:

  • Tölvubúnaður til skólans að verðmæti 100.000 krónur frá Advania.
  • Eitt lukkudýr til eignar fyrir hvern nemanda í bekknum.
  • Lukkudýrið kemur í heimsókn í skólann.
  • Heiðurinn af því að eiga hugmyndina að nafni lukkudýrsins.

Saga lukkudýrsins

Það er eldgos á Íslandi. Í eldgosinu má sjá hvar lítill gosdropi fæðist. Hann opnar augun og á sama tíma þeytist hann upp úr gosinu og upp í loft. Gosdropinn svífur í loftinu og lendir á jökli þar sem hann fær ís á halann sinn. Hann skoppar og þeytist aftur upp í loft og áfram yfir hraun og mosa þar sem hann fær mosafeldinn sinn. Hann lendir að lokum á stuðlabergi þar sem hann fær stuðlabergsskóna sína. Litli náttúrukrafturinn er orðinn að lukkudýri Smáþjóðaleikanna á Íslandi 2015. Lukkudýrið er mjög litríkt. Hárið er eldur úr eldgosi, höfuðið er sólin sjálf, búkurinn er úr mosa, halinn er þakinn ísmolum úr jökli, fótleggirnir eru úr vatni og loks stendur lukkudýrið vel á fótum úr stuðlabergi. Lukkudýrið er einnig lipurt og sterkt.

Hægt er að skoða myndband af því hvernig lukkudýrið varð til hér að neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert