Táknmál í Símaskránni 2015

mbl.is

Þjónustufyrirtækið Já hefur skrifað undir samstarfssamning við Félag heyrnarlausra um miðlun fræðsluefnis í Símaskránni 2015, á 55 ára afmælisári félagsins. Megin áhersla verður lögð á að kynna táknmálið fyrir Íslendingum og vekja áhuga á tungumálinu. Það að kunna þó ekki sé nema fáein tákn í táknmáli getur gert gæfu muninn í samskiptum við heyrnarlausa og það er því von Já að sem flestir nýti sér einfalt aðgengi þessa efnis í Símaskránni.

„Eitt af markmiðum í starfi Félags heyrnarlausra er að gera íslenska táknmálið sýnilegt og aðgengilegt sem flestum,“ er haft eftir Daða Hreinssyni, framkvæmdastjóra Félags heyrnarlausra, í fréttatilkynningu. „ Með samstarfi við Já gefst okkur tækifæri á að kynna og upplýsa almenning meira um táknmálið og hvar megi nálgast það. Við hjá félaginu þökkum það jákvæða og góða viðhorf sem Já hefur sýnt okkur með samstarfi  um íslenska táknmálið í Símaskránna 2015.“

Þess má enn fremur geta að Já hefur nú í tæpan áratug boðið lögblindum upp á endurgjaldslausa þjónustu í gegnum númerið 1818. Með því að bjóða þjónustuna endurgjaldslaust vildi Já taka skref í þá átt að styðja við og bjóða lögblindum þá nauðsynlegu þjónustu að verða sér út um upplýsingar til að sinna daglegum störfum þar sem þeir geta ekki nýtt sér aðra miðla Já á borð við Símaskrána og Já.is.

„Við hjá Já lítum svo á að það séu mannréttindi að geta átt í samskiptum við aðra,“ segir Lilja Hallbjörnsdóttir, Þjónustustjóri Já. „Við höfum unnið að því allt frá stofnun fyrirtækisins að leita leiða til að sem flestir geti nýtt sér þjónustu Já til að eiga viðskipti og samskipti í gegnum þá fjölbreyttu miðla sem Já býður upp á. Við finnum fyrir mikilli ánægju og þakklæti frá þeim sem hafa nýtt sér þessa endurgjaldslausu þjónustu og erum mjög stolt af þessu samstarfi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert