Það er af sem áður var

Á meðfylgjandi myndum má sjá hvernig pappírsflóðið hefur minnkað í …
Á meðfylgjandi myndum má sjá hvernig pappírsflóðið hefur minnkað í gegnum árin þökk sé rafrænum skilum. mynd/Umhverfisstofnun

Yfir 12.000 veiðimenn þurfa að skila veiðiskýrslu fyrir árið 2014. Veruleg aukning hefur orðið á undanförnum árum í rafrænum skilum. Um 96% veiðimanna skila skýrslunni rafrænt á skilavef Umhverfisstofnunar. Einungis 857 veiðimenn eru ekki með tölvupóst og fá senda veiðiskýrslu á pappírsformi.

Fram kemur á vef Umhverfisstofnunar, að veiðimenn hafi undanfarna daga fengið senda tilkynningu frá stofnuninni þar sem þeir eru beðnir um að skila veiðiskýrslu fyrir árið 2014.

Alls fá 19.543 veiðimenn aðgangsorð til að skila veiðiskýrslu. Af þeim þurfa 12.087 að skila skýrslu þar sem þeir voru veiðikorthafar á síðastliðnu ári. Allir veiðikorthafar þurfa að skila skýrslu hvort sem þeir fóru til veiða á árinu eða ekki. 

„Veruleg aukning hefur orðið á undanförnum árum í rafrænum skilum. Um 96% veiðimanna skila skýrslunni rafrænt á skilavef Umhverfisstofnunar. Einungis 857 veiðimenn eru ekki með tölvupóst og fá senda veiðiskýrslu á pappírsformi. Bjarni Pálsson, teymisstjóri veiði- og verndarteymis hefur í gegnum árin fylgst með breytingum á rafrænum skilum sem hófust 1999,“ segir í tilkynningu á vef Umhverfisstofnunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert