Hreindýr í kaupstaðarferð

Hreindýrin röltu um miðbæ Egilsstaða. Í bakgrunni má sjá Gistihúsið …
Hreindýrin röltu um miðbæ Egilsstaða. Í bakgrunni má sjá Gistihúsið á Egilsstöðum, og hinum megin við er Hótel Hérað og miðbærinn. Ljósmynd/Ívar Ingimarsson

„Þetta voru um tuttugu dýr sem dóluðu sér í gegnum bæinn. Þetta gerist reglulega og menn hafa grínast með það að þau komi hingað í kaupstaðarferðir til að versla,“ segir Ívar Ingimarsson, eigandi Gistihúss Olgu á Egilsstöðum, en hann tók myndir af því í gærmorgun þegar hjörð hreindýra rölti í gegnum bæinn.

Hreindýrin leituðu sér ætis á túni við þjóðveginn sem liggur í gegnum miðbæinn á Egilsstöðum, en myndirnar voru teknar um klukkan níu í gærmorgun. „Ég stöðvaði bílinn um þrjátíu metra í burtu. Það er algengt þegar dýrin eru svona nálægt að fólk stöðvi bílana og sé að skoða þau en þau virðast nokkuð róleg því þau vita að þau eru örugg á svæðinu á þessum tíma.

Sérstakt að rölta í miðbænum og rekast á hreindýr

Egilsstaðir hafa gjarnan verið nefndir hreindýrabær Íslands, og segir Ívar bæinn svo sannarlega standa undir nafni. „Það er ekki á mörgum stöðum þar sem þú ert að þvælast í miðbænum og rekst á hreindýr. Það er svolítið sérstakt, en það er rosalega gaman að sjá þessi villtu dýr svona nálægt. Þau eru voðalega róleg svo þetta er mjög vinalegt og skemmtilegt.

Ívar birti myndirnar á Facebook-síðu Gistihúss Olgu, og hafa þær vakið töluverða athygli. „Þessar myndir hafa farið ansi víða og margir hafa skoðað þær. Sumir hafa grínast með það að það væri þægilegt að hafa veiðitímabilið núna því þá væri hægt að sækja sér dýr úr vinnunni,“ segir hann og hlær. „En það er mjög gaman ef hreindýrin vekja athygli á svæðinu.“

Hreindýrin leituðu sér eftir æti við þjóðveginn sem liggur í …
Hreindýrin leituðu sér eftir æti við þjóðveginn sem liggur í gegnum miðbæinn á Egilsstöðum. Ljósmynd/Ívar Ingimarsson
Grínast hefur verið með það að dýrin fari í kaupstaðarferðir …
Grínast hefur verið með það að dýrin fari í kaupstaðarferðir til Egilsstaða til að versla. Ljósmynd/Ívar Ingimarsson
Að sögn Ívars voru dýrin mjög róleg.
Að sögn Ívars voru dýrin mjög róleg. Ljósmynd/Ívar Ingimarsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert