Vegur lagður með hafnargarðinum

Gerður var vegur meðfram eystri hafnargarðinum í Landeyjahöfn. Það bæði …
Gerður var vegur meðfram eystri hafnargarðinum í Landeyjahöfn. Það bæði auðveldar viðhald hafnargarðsins og eykur öryggi. mbl.is/Pétur Pétursson

Búið er að gera veg hafnarmegin með eystri brimvarnargarðinum við Landeyjahöfn. Einnig var byggður útsýnispallur við höfnina. Þá var flóðvarnargarður Markarfljótsmegin færður nær sjónum.

Í Morgunblaðinu í dag segir Ólafur Einarsson, framkvæmdastjóri Þjótanda, að verkið hefði hafist í september s.l. og því lokið laust eftir síðustu áramót.

Byrjað var á að grafa upp flóðvarnargarðinn sem var kominn á kaf í sand, en fjaran hefur færst langt út á þessum kafla, að hans sögn. Ólafur segir að gerð aðkomuvegarins eftir eystri brimvarnargarðinum hefði oft gengið erfiðlega vegna slæms veðurs og brims í höfninni.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert