Vilja merkja vörur frá hernumdu svæðunum

Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna.
Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Sex þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingis þess efnis að ríkisstjórninni verði falið „að grípa til nauðsynlegra ráðstafana annars vegar til að merkja uppruna vara sem framleiddar eru á hernumdum svæðum Palestínu með viðeigandi hætti og hins vegar til að gera Palestínumönnum kleift að nýta sér kosti fríverslunarsamnings EFTA og Palestínu.“ Fyrsti flutningsmaður er Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs.

Þingsályktunartillagan var áður lögð fram árið 2012 en náði þá ekki fram að ganga. „Með þeim ráðstöfunum sem þessi þingsályktunartillaga kallar eftir yrði íslenskum neytendum gert kleift að taka sjálfir ákvörðun um hvort þeir vilja styðja efnahagslíf á ólöglegum landnemabyggðum á hernumdu svæðunum í Palestínu. Ekki er víst að sérmerking slíkra vara muni hafa mikil áhrif á viðskipti Íslands og Ísraels, heldur ættu þær frekar að gera vörur sem skráðar eru sem ísraelskar afurðir síður tortryggilegar,“ segir meðal annars í greinargerð með tillögunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert