Segir skýringarnar „mótsagnakenndar“

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar.
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar. mbl.is/Eggert

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, spyr hvar það standi í lögum að Seðlabanki Íslands geti ákveðið einhliða að afsala sér ákvörðunarvaldi við lánveitingar. Hann segir ekkert í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins í gær standast efnislega skoðun.

„Mótsagnakenndar eftiráskýringar“ geti aldrei verið til vitnis um nokkurn skapaðan hlut, „nema krampakenndar tilraunir til að sleppa við ábyrgð á eigin gerðum,“ segir Árni Páll.

Fram kom í Reykjavíkurbréfinu, þar sem aðdraganda lánsins er lýst, að það hafi verið vilji rík­is­stjórn­ar Geirs H. Haar­de að veita Kaupþingi 500 millj­óna evra lán skömmu fyr­ir fall bank­ans 2008 en ekki Seðlabank­ans. 

Rúv greindi frá því í kvöldfréttum í gær að lánveiting Seðlabankans hefði verið aðgerð bankans og ekki háð samráði við ráðherra. Var þar vitnað í bréf Seðlabankans til fjárlaganefndar Alþingis árið 2013, þar sem segir að um hafi verið „að ræða aðgerð af hálfu Seðlabankans, sem hvorki nú né þegar atvik gerðust, er háð samráði við ráðherra, þó svo að slíkt geti í einhverjum tilvikum talist eðlilegt að sé gert.“

Lán Seðlabank­ans til Kaupþings hef­ur komið aft­ur til umræðu eft­ir að dóm­ur féll í Al Thani-mál­inu í Hæsta­rétti á dög­un­um. Bjarni Bene­dikts­son fjár­málaráðherra talaði um að hann væri þeirr­ar skoðunar að rík­is­sjóður ætti að kanna hvort að hann ætti bóta­kröfu á hend­ur slita­búi Kaupþings þar sem 500 millj­óna evra lán sem Seðlabank­inn veitti bank­an­um hafi átt sér stað um sama leyti og brot­in í mál­inu voru fram­in.

Árni Páll segir Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabankastjóra, víkja sér undan ábyrgð á lánveitingunni til Kaupþings „með nýrri kenningu um að seðlabankastjórunum hafi þótt eðlilegt að vilji ríkisstjórnarinnar réði.

Af hverju? Hvar stendur það í lögum að Seðlabankinn geti ákveðið einhliða að afsala sér ákvörðunarvaldi með þessum hætti? Getur maður ákveðið að vera bara stundum seðlabankastjóri, en vísa ábyrgð annað að vild?“ spyr Árni Páll meðal annars.

Frétt mbl.is: Ríkisstjórnin veitti Kaupþingi lánið

Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert