Bíll valt á Holtavörðuheiði

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Ökumaður slasaðist lítillega er bifreið rann út af veginum og valt á Holtavörðuheiði fyrr í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er bifreiðin töluvert skemmd og er unnið að því að fjarlæga hana.

Að sögn lögreglumanns er hálka og snjór á heiðinni en ágætis veður þrátt fyrir það.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert