Mamma látin sækja soninn

Móðir piltsins kom á lögreglustöðina og sótti son sinn.
Móðir piltsins kom á lögreglustöðina og sótti son sinn. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þurfti að hafa samband við móður sautján ára pilts um miðnætti þar sem unglingurinn var til vandræða sökum ölvunar. Hann var sóttur á lögreglustöðina af móður sinni, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Lögreglunni barst tilkynning um heimilisofbeldi um eitt leytið í nótt en ofbeldismaðurinn var farinn af heimilinu er lögreglan kom. Málið er í rannsókn lögreglunnar.        

Um sjöleytið í gærkvöldi var tilkynnt um þjófnað á fatnaði úr búningsklefa íþróttahúss en ekki er vitað hver var þar á fer og málið í rannsókn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert