Flestir vilja síst hafa Framsókn í ríkisstjórn

Þingmenn Framsóknarflokksins á fundi í þinghúsinu.
Þingmenn Framsóknarflokksins á fundi í þinghúsinu. mbl.is/Ómar

MMR kannaði á dögunum afstöðu almennings til þess hvaða stjórnmálaflokk sem er með þingmenn á Alþingi það myndi síst vilja hafa í ríkisstjórn. Flestir sögðust síst vilja hafa Framsóknarflokkinn í ríkisstjórn eða 38,9%.

16,6% sögðust síst vilja hafa Sjálfstæðisflokkinn í ríkisstjórn, 15,1% sögðust síst vilja hafa Samfylkinguna, 13,6% sögðust síst vilja hafa Vinstri-græn. 12,3% sögðust síst vilja hafa Pírata og 3,6% sögðust síst vilja hafa Bjarta framtíð (miðað við þriggja mánaða rúllandi meðaltal), að því er segir í tilkynningu frá MMR.

Þar segir ennfremur, að frá því í febrúar 2014 hafi þeim fjölgað nokkuð sem sögðust síst vilja hafa Framsóknarflokkinn í ríkisstjórn. Í febrúar 2014 sögðust 23,4% síst vilja hafa Framsóknarflokkinn í ríkisstjórn, borið saman við 38,9% í febrúar 2015 (miðað við þriggja mánaða rúllandi meðaltal).

Spurningin hefur verið lögð fyrir mánaðarlega í könnunum MMR fá því í apríl 2010. 

Ungt fólk vildi síður hafa Framsóknarflokkinn í ríkisstjórn en þeir seru eldri eru. Af þeim sem tóku afstöðu og tilheyrðu yngsta aldurshópnum (18-29 ára) sögðust 44% síst vilja hafa Framsóknarflokkinn í ríkisstjórn, borið saman við 34% þeirra sem voru 68 ára eða eldri, að því er fram kemur í tilkynningu.

Fleiri íbúar á höfuðborgarsvæðinu sögðust síst vilja hafa Framsóknarflokkinn í ríkisstjórn (45%) en þeir sem búsettir voru á landsbyggðinni (28%). Þeir sem voru búsettir á landsbyggðinni vildu síður hafa Samfylkinguna í ríkisstjórn (21%) en þeir sem búsettir voru á höfuðborgarsvæðinu (12%).

Þeir sem sögðust styðja ríkisstjórnina voru síst hafa Samfylkinguna (36%) í ríkisstjórn en þeir sem ekki studdu ríkisstjórnina vildu síst hafa Framsóknarflokkinn í ríkisstjórn (62%).

Nokkur munur var á afstöðu eftir stuðningi við stjórnmálaflokka. Af þeim sem tóku afstöðu og studdu Framsóknarflokkinn sögðust 48% síst vilja hafa Samfylkinguna í ríkisstjórn. Af þeim sem studdu Sjálfstæðisflokkinn sögðust 31% síst vilja hafa Samfylkinguna í ríkisstjórn. Af þeim sem studdu Samfylkinguna vildu 77% síst vilja hafa Framsóknarflokkinn í ríkisstjórn. Af þeim sem studdu Vinstri-græn vildu 62% síst hafa Framsóknarflokkinn í ríkisstjórn. Af þeim sem studdu Bjarta framtíð vildu 68% síst hafa Framsóknarflokkinn í ríkisstjórn og af þeim sem studdu Pírata vildu 59% síst hafa Framsóknarflokkinn í ríkisstjórn.

Könnunin hefur verið framkvæmd mánaðarlega frá og með apríl 2010og er heildarfjöldi svarenda að jafnaði 950 einstaklingar (18 ára og eldri) á mánuði, segir í tilkynningu MMR.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert