Fuglarnir smám saman fyrr á ferðinni

Lóan og ýmsar aðrar fuglategundir hafa smá saman komið fyrr …
Lóan og ýmsar aðrar fuglategundir hafa smá saman komið fyrr til landsins eftir veturinn síðustu ár. mbl.is/Ómar Óskarsson

Lóan og ýmsar aðrar fuglategundir hafa smám saman komið fyrr til landsins eftir veturinn síðustu ár. Í ár sást fyrsta lóan í Breiðdal 18. mars en meðalkomutími heiðlóunnar er 23. mars þegar litið er til áranna 1998 – 2014. Hún sló þó ekki fyrra met sem sett var 12. mars árið 2012.  

Frétt mbl.is: Lóan er komin

Þó fyrsta lóan hafi sést í síðustu viku koma flestar þeirra ekki fyrr en í næsta mánuði. Lóan hefur vetursetu á Bretlandseyjum og er alfriðuð á Íslandi. Á Íslandi segja margir að heiðlóan sé merki þess að vor og sumar sé á næsta leyti og hefur lóan verið kölluð vorboðinn ljúfi.

Ævar Pedersen fuglafræðingur segir að vissulega komi fyrir að ein og ein lóa hafi vetursetu hér á landi og því geti stundum verið erfitt að segja hvort fyrsta lóan sé nýkomin hingað til lands eða hafi dvalið hér yfir veturinn.

Flestir farfuglarnir koma til landsins í apríl og maí. Sílamáfurinn kemur að jafnaði fyrstur alla leið frá Marokkó í janúar og febrúar. Tjaldar, lóur og grágæsir hafa komið í mars og lét fyrsti hrossagaukurinn einnig sjá sig í þessum mánuði í ár.

Ævar segir að veturinn, sem hefur verið heldur harður að þessu sinni, gæti hugsanlega seiknað varpi varpfugla.

Hrossagaukurinn kom til landsins í þessum mánuði.
Hrossagaukurinn kom til landsins í þessum mánuði. Brynjar Gauti
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert