Flughált undir Eyjafjöllum

Ökumenn ættu að huga að færðinni í dag en víða …
Ökumenn ættu að huga að færðinni í dag en víða er hálka eða hálkublettir. mbl.is/Malín Brand

Hálkublettir eru á Hellisheiði og í Þrengslum en annars er nokkur hálka eða hálkublettir á Suðurlandi, einkum útvegum og sumstaðar er jafnvel þæfingur eða þungfært á sveitavegum. Flughált er á kafla undir Eyjafjöllum.

Á Vesturlandi er víða hálka eða snjóþekja á vegum. Hálka og skafrenningur er á Holtavörðuheiði.

Hálka eða snjóþekja er á vegum á Vestfjörðum. Snjóþekja og skafrenningur er á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum.

Það er víðast hvar hálka eða snjóþekja á Norðurlandi og éljagangur nokkuð víða, einkum á Norðausturlandi. Skafrenningur er á Vatnsskarði og á fjallvegum fyrir austan Eyjafjörð og stórhríð á Tjörnesi og í nágrenni Húsavíkur. Þæfingsfærð er á Hólasandi.

Á Austurlandi er víða hálka eða snjóþekja á vegum og skafrenningur og blint á flestum fjallvegum. Þungfært  og skafrenningur er á Vatnsskarði eystra og þæfingsfærð og skafrenningur á Fjarðarheiði. Á Fagradal er hálka og einnig skafrenningur og snjóþekja á Oddskarði. Hálka eða hálkublettir eru með suðausturströndinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert