Hamingjuhlaup fyrir alla fjölskylduna

Davíð glaður í upphafi eins af þeim Litahlaupum sem hann …
Davíð glaður í upphafi eins af þeim Litahlaupum sem hann hefur hlaupið.

Það er sannarlega tilbreyting frá keppnishlaupum og metorðum þegar boðið er upp á stutt hlaup með engri tímatöku. Litahlaupið, The Color Run, er einmitt slíkt hlaup, en það verður haldið í fyrsta sinn á Íslandi í sumar. Hlaupið er einvörðungu til að fólk skemmti sér og öðrum en einnit til að styrkja í leiðinni gott málefni. Nú þegar hafa selst 4.000 miðar af 6.000 sem í boði eru. Þeir sem ekki vilja hlaupa geta fengið að kasta litapúðri yfir hlauparana á eins kílómetra fresti.

Þetta er búið að vera rosalega skemmtilegt, þó að það hafi tekið langan tíma. Ég byrjaði á að afla mér upplýsinga um alla þætti sem snúa að framkvæmd hlaupsins strax fyrir þremur árum, þegar ég hljóp sjálfur mitt fyrsta Litahlaup,“ segir Davíð Lúther Sigurðarson en hann er framkvæmdastjóri Litahlaupsins á Íslandi sem fer fram í fyrsta sinn í sumar, hinn 6. júní.

Litahlaupið er alþjóðlegt hlaup, The Color Run, sem fór af stað í Arizona í Bandaríkjunum árið 2012 fyrir tilstuðlan eins manns, Travis Snyder, en hann vildi einfaldlega fá allskonar fólk til að hlaupa saman sér til skemmtunar.

„Í Litahlaupi er hlaupið í gegnum fimm kílómetra langa litapúðurssprengju, því á eins kílómetra fresti er hlaupið í gegnum litastöð með tónlist, skemmtun og nýjum lit sem er úðað yfir hlauparana. Við endamarkið er svo mikil hátíð eða eftirpartí þar sem litadýrðin verður að einni allsherjar upplifun,“ segir Davíð og bætir við að fyrir hlaupið verði upphitunarpartí og teknar verði frábærar selfie-myndir af hlaupurunum fyrir, á meðan og eftir hlaupið.

Davíð segir að þetta sé tilvalin skemmtun fyrir fjölskyldur, hlaupalengdin og gleðin henti öllum aldurshópum og ekki sé skálað í áfengi heldur ávaxtasöfum.

„Fólki er velkomið að hlaupa með börn sín í barnavögnum og börn undir 8 ára aldri fá frítt í fylgd með fullorðnum. Á The Color Run hittist fólk og kynnist og fregnir herma að það hafi leitt af sér tíu trúlofanir og eitt brúðkaup. Þetta er því sannkölluð kærleikssamkoma.“

Skaðlaust maísenamjöl

Davíð segir að það hafi verið heilmikið ferli að fá litina sem úða eigi yfir hlauparana til Íslands frá Indlandi, en þeir eru ekki málning heldur náttúrulegt litapúður sem gert er úr kornsterkju, sem við þekkjum betur sem maísenamjöl.

„Þetta er skaðlaust en vissulega ættu þeir sem eru mjög viðkvæmir í öndunarfærum kannski síður að taka þátt í hlaupinu. Fólk þarf ekki heldur að hafa áhyggjur af því að litirnir skemmi fötin en við mælum samt með að fólk mæti í sínum hversdags hlaupafötum en ekki rándýrri merkjavöru, bara til að vera alveg viss. Auk þess fylgir þvottaefni í þátttökupakkanum. Ég hef sjálfur tekið þrisvar þátt í The Color Run og skórnir mínir og fötin hafa öll komið sem ný úr þvotti eftir hlaupið,“ segir Davíð og bætir við að stemningin hafi verið einstaklega skemmtileg í þessi skipti sem hann tók þátt.

Viltu úða yfir hlauparana?

Davíð segir að hluti þátttökugjalda hlaupsins renni til góðgerðarsamtaka á Íslandi.

„Við stefnum að því að gefa fimm milljónir til samtaka sem tengjast réttindum barna og munum tilkynna síðar hvaða samtök það eru.“

Á nýrri vefsíðu íslenska Litahlaupsins má nálgast allar upplýsingar, þar er hægt að skrá sig í hlaupið (þar er linkur inn á midi.is) og þar geta einnig þeir sent póst sem áhuga hafa á að taka að sér að úða litapúðri yfir hlaupara, eða með öðrum orðum: langar að vera litabomba. Þeir hinir sömu geta sent póst á netfagið:

island@thecolorrun.com

Einnig getur fólk freistað þess að vinna sér þátttökumiða í hlaupið með því að læka Facebook síðu The Color Run.

Tröllvaxinn alheimsviðburður

The Color Run var fyrst haldið árið 2012 í Phoenix í Arizona og var það Bandaríkjamaðurinn Travis Snyder sem kom þessu hlaupi á laggirnar til að hvetja bæði atvinnu- og áhugahlaupara til að hlaupa saman til gamans. Á síðustu þremur árum hefur hlaupið farið sigurför um heiminn því um er að ræða einstakan fjölskylduviðburð sem haldinn hefur verið í meira en 40 löndum og tvær milljónir manna hafa tekið þátt. Árið 2014 voru hlaupin meira en 300 hlaup í meira en 50 löndum og er The Color Run orðið tröllvaxinn alheims viðburður.

Þrátt fyrir að hlaupið gangi út á skemmtun og upplifun þá stuðlar það líka að bættum lífsstíl. 60% þátttakenda í The Color Run eru að hlaupa 5 km í fyrsta sinn og taka flestir þessara aðila þátt í fleiri hlaupum og öðrum skemmtilegum keppnisviðburðum í kjölfarið. „Það er okkur mikið gleðiefni að viðburður okkar leiði fólk til heilbrigðari og virkari lífsstíls,“ er haft eftir Snyder, upphafsmanni The Color Run.

Hér fara keppendur skælbrosandi af stað í The Color Run.
Hér fara keppendur skælbrosandi af stað í The Color Run.
Sumir segja að gulur sé hamingjulitur og þessi stúlka tók …
Sumir segja að gulur sé hamingjulitur og þessi stúlka tók gulu púðri fagnandi.
Þessar hlupu í The Color Run í Svíþjóð.
Þessar hlupu í The Color Run í Svíþjóð. Chattria Thinroj
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert