Helstu vegir landsins greiðfærir

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Greiðfært er um alla helstu vegi landsins en þoka er á fjallvegum á Snæfellsnesi og á Hálfdán. Búið er að opna veginn yfir Öxi en þar er hálka.

Vegna vinnu í Múlagöngum aðfaranótt föstudagsins 17. apríl má reikna með umferðarföfum þar frá klukkan 21.00 til 06.00 að morgni.

Vegna hættu á slitlagsskemmdum eru nú þungatakmarkanir víða um land.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert