Sex staðir seldu unglingum neftóbak

Unglingar geta keypt sígarettur og munntóbak í Hafnarfirði.
Unglingar geta keypt sígarettur og munntóbak í Hafnarfirði. Morgunblaðið/Eva Björk

Í mars- og apríl stóð forvarnarfulltrúi Hafnarfjarðar fyrir könnun á því hvort unglingar gætu keypt sígarettur eða neftóbak á sölustöðum tóbaks í Hafnarfirði. Tveir unglingar úr 10. bekk fóru á sölustaði undir eftirliti starfsmanna Hafnarfjarðarbæjar og reyndu að kaupa neftóbak og svo nokkru seinna var reynt að kaupa sígarettur.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ. 

Tveir sölustaðir seldu unglingunum sígarettur af 15 sölustöðum en sex staðir seldu þeim neftóbak af þeim 15 sölustöðum sem eru aðgengilegir ungu fólki. Ekki var farið inn á staði með vínveitingaleyfi þar sem tóbak er selt.

Frekari upplýsingar úr könnuninni eru sendar Heilbrigðiseftirliti Kópavogs- og Hafnarfjarðarsvæðisins þar sem unnið verður úr þeim eins og lög gera ráð fyrir. Sölustöðunum er seldu börnunum tóbak verður einnig send ábending frá forvarnarfulltrúa.

Einn sölustaður seldi unglingunum bæði sígarettur og neftóbak.

Búast má við því að þeir staðir sem seldu börnum tóbak fái áminningu frá heilbrigðiseftirliti eins og kveður á um í lögum um tóbaksvarnir. Síðustu misseri hafa söluaðilar sett sér stöðugt skýrari reglur sem tryggja að aldurstakmörk séu virt. Hafnarfjarðarbær hefur síðustu ár athugað aðgengi barna að tóbaki tvisvar til þrisvar á ári og veitt sölustöðum stöðugt aðhald.

Meirihluti sölustaða í Hafnarfirði hefur gert sérstakt samkomulag við forvarnafulltrúann sem miðar að því að leita allra leiða til að koma í veg fyrir sölu tóbaks til barna.

Í síðustu könnununum hafa komið svipaðar niðurstöður og nú en þó er aukning í neftóbakssölu og minnkun í sígarettusölu. Markmiðið er að engin sölustaður selji börnum tóbak. Því mun forvarnafulltrúi í umboði Fjölskylduráðs Hafnarfjarðar halda áfram með þessar kannanir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert