Drengur sem var að hlaupa yfir götu í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni, varð fyrir bíl. Atvikið bar að með þeim hætti að hópur barna var að koma út úr rútu, sem stöðvuð hafði verið í vegkanti.
Ökumaður sem ók eftir götunni var að horfa á eftir hópnum, sem var kominn yfir, þegar drengur sem dregist hafði aftur úr hljóp yfir götuna og varð fyrir bifreiðinni, þar sem ökumaðurinn náði ekki að hemla í tæka tíð.
Drengurinn reyndist slasaður á fótum og var fluttur með sjúkrabifreið á Landspítala þar sem gert var að meiðslum hans.