Flestir treysta Ólafi Ragnari

MMR mældi á dögunum traust almennings til forystufólks í stjórnmálum. Flestir sögðust bera mikið traust til Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands (48,5%), Katrínar Jakobsdóttur, formanns Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs (46,7%), Dags B. Eggertssonar, borgarstjóra (37,0%) og Birgittu Jónsdóttur, kapteins Pírata (32,3%). Annað forystufólk í stjórnmálum sem könnunin náði til naut mikils trausts um eða undir fjórðungs þeirra sem tóku afstöðu.

Spurt var: Hve mikið eða lítið traust berð þú til eftirfarandi aðila.
Svarmöguleikar voru mjög lítið traust, frekar lítið traust, hvorki mikið né lítið traust, frekar mikið traust, mjög mikið traust og veit ekki/vil ekki svara.
Niðurstöður sýna fjölda þeirra sem svöruðu annað hvort mjög/frekar mikið eða lítið traust.
Samtals tóku 96,8% afstöðu til spurningarinnar að hluta eða öllu leyti.

Birgitta Jónsdóttir, kapteinn Pírata er eini stjórnmálaleiðtoginn sem nýtur meira trausts nú en í júní 2013, að undanskildum þeim sem eru nýir í mælingu.

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1060 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 30. mars til 8. apríl 2015
Eldri kannanir sama efnis:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert