Greiðfært um allt land

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Aðalleiðir eru nú greiðfærar að heita má um allt land en þoka er á fjallvegum á Snæfellsnesi og á sunnanverðum Vestfjörðum, samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar.

Vegir sem ekki eru í vetrarþjónustu eru sumir hverjir orðnir færir. Búið er að opna veginn yfir Öxi en þar er hálka. Vegir sem enn eru lokaðir eða ófærir eru t.d. Nesjavallaleið og eins bæði Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert