Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók tvo í nótt sem eru grunaðir um að hafa brotist inn í bíla í austurhluta borgarinnar. Þeir gista nú fangageymslur.
Um eitt í nótt voru tveir ökumenn stöðvaðir grunaðir um ölvunarakstur. Þeir voru báðir látnir lausir að lokinni blóðtöku.
Um ellefu leytið í gærkvöldi var tilkynnt um að skemmdarverk hefðu verið unnin á þremur bílum í Mosfellsbæ. Sá eða þeir sem voru þar að verki eru ófundnir en málið er í rannsókn lögreglunnar.