Freyja himinlifandi með Moggabílinn

Í fyrradag var dregið í áskrifendahappdrætti Morgunblaðsins og hreppti Freyja Jónsdóttir vinninginn, Toyota Corolla af nýjustu kynslóð.

Freyja fékk bílinn afhentan í dag í höfuðstöðvum Toyota á Íslandi. Hún var að sjálfsögðu himinlifandi með vinninginn, en hún segist aldrei áður hafa unnið í happdrætti. Freyja segir að hún hafi verið farin að huga að því að kaupa nýjan bíl, og vinningurinn muni koma sér í góðar þarfir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert