Ferðamaður tekinn á 155 km hraða

Suðurlandsvegur.
Suðurlandsvegur. mbl.is/Sigurður Bogi

Lögreglan á Suðurlandi stöðvaði fyrr í dag erlendan ferðamann sem ók á 155 km hraða á Suðurlandsvegi við Þjórsárbrú. Hámarkshraði á veginum er 90 km/klst.

Maðurinn var færður á lögreglustöð þar sem tekin var af honum skýrsla, og í kjölfarið var hann sviptur ökuréttindum í einn mánuð auk þess að fá sekt upp á 130 þúsund samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert