Auðmýkjandi og ekki hlutlaus

Stjórn og varastjórn Kvenréttindafélagsins. Á myndina vantar Tatjönu Latinovic og …
Stjórn og varastjórn Kvenréttindafélagsins. Á myndina vantar Tatjönu Latinovic og Snæfríði Ólafsdóttur. Ljósmynd/Kvenréttindafélag Íslands

„Fóstureyðingar á Íslandi eru ekki frjálsar, heldur er ákvörðunarréttur um þær settur í hendur heilbrigðisstarfsfólks.“ Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar Kvenrréttindafélags Íslands, sem fram fór í dag.

Í ályktuninni segir einnig:

„Konum sem leita eftir fóstureyðingum hér á landi er samkvæmt lögum frá 1975 skylt að hljóta ráðgjöf og fræðslu heilbrigðisstarfsfólks. Frásagnir kvenna sem hafa þurft að sitja undir þessari fræðslu benda til að hún sé auðmýkjandi og ekki hlutlaus.

Kynfrelsi er eitt af grundvallarskilyrðum að réttlátu samfélagi. Fóstureyðingar eru frjálsar í stærstum hluta Vestur-Evrópu, þar á meðal í Svíþjóð, Danmörku og Noregi, og þær eiga að vera það líka á Íslandi.

Aðalfundur Kvenréttindafélags Íslands krefst þess að íslensk stjórnvöld endurskoði löggjöf um fóstureyðingar, og viðurkenni kynfrelsi kvenna og yfirráð kvenna yfir eigin líkama.“

Á fundinum var kjörin ný stjórn félagsins en í henni sitja Dagný Ósk Aradóttir Pind, Helga Dögg Björgvinsdóttir, Hildur Helga Gísladóttir, Hugrún R. Hjaltadóttir, Steinunn Stefánsdóttir og Tatjana Latinovic. Formaður stjórnar er Fríða Rós Valdimarsdóttir, en í varastjórn sitja Eygló Árnadóttir, Ragnhildur G. Guðmundsdóttir og Snæfríður Ólafsdóttir.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert