Stórhríð í Húnavatnssýslum

mbl.is/Malín Brand

Það er víða hálka, snjóþekja, skafrenningur og éljagangur á Norðurlandi.

Snjóþekja og stórhríð er á milli Laugarbakka og Blönduóss. Þæfingsfærð og skafrenningur er yst á Siglufjarðarvegi, á Öxnadalsheiði, milli Akureyrar og Dalvíkur og víða austan Eyjarfjarðar en mokstur stendur yfir. Ófært er á Hólasandi og í Hófaskarði. Ófært er um Mývatns- og Möðrudalsöræfi en mokstur stendur yfir.

Á Austurlandi er hálka, snjóþekja og víða skafrenningur.  Lokað er á Fjarðarheiði en mokstur stendur yfir. Ófært er á Vatnsskarði eystra. Snjóþekja og skafrenningur er á Oddsskarði og Fagradal. Öxi og Breiðdalsheiði eru ófærar.

Greiðfært er með suðausturströndinni en nokkuð hvasst og sandfok á Skeiðarársandi.

Vegir eru greiðfærir að heita má um allt sunnanvert landið.  Hvassviðri er á Kjalarnesi.

Á Vesturlandi eru flestir vegir greiðfærir en eitthvað er um hálkubletti. Hálka og skafrenningur er á Holtavörðuheiði og í Svínadal. Snjóþekja og skafrenningur er á Bröttubrekku en Fróðárheiði er ófær og þar er stórhríð.

Hálka eða snjóþekja er á flestum leiðum á Vestfjörðum.  Þæfingsfærð er á Kleifarheiði og í Ísafjarðardjúpi. Ófært er á Klettshálsi og Steingrímsfjarðarheiði og áætlað að reyna mokstur um hádegi.  ófært er norður í Árneshrepp og á Þröskuldum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert