Meirihluti nemenda andvígur

Ljósmynd/Iðnskólinn

Meirihluti nemenda við Iðnskólann í Hafnarfirði er andvígur fyrirhugaðri sameiningu við Tækniskólann. Nemendur við skólann stóðu á dögunum fyrir undirskriftasöfnun þar sem áformunum er mótmælt. Á aðeins tveimur dögum skrifuðu yfir 280 nemendur af  rúmlega 400 undir. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá fulltrúa nemenda skólans. 

Nemendur skrifuðu undir eftirfarandi yfirlýsingu: 

„Við undirrituð nemendur í Iðnskólanum í Hafnarfirði erum afar ósátt við hvernig staðið er að málum sameiningu skólanna. 

Okkur þykir það ólíðandi að við förum í sumarfrí og vitum ekkert hvernig komandi vetri verður háttað. Öll völdum við þennan tiltekna skóla til þess að nema, af ríkri ástæðu. Við krefjumst þess að hagsmunum okkar og kennaranna verði gætt, og að þessi sameining verði endurskoðuð“.

Fulltrúar nemenda munu ganga á fund Illuga Gunnarssonar, mennta- og menningarmálaráðherra kl. 09.10 í fyrramálið og afhenda honum undirskriftalistann.

Frétt mbl.is: Mótmæltu sameiningu við Tækniskólann

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert