Ólöf ráðin safnstjóri Listasafns Reykjavíkur

Ólöf Kristín Sigurðardóttir.
Ólöf Kristín Sigurðardóttir.

Ólöf Kristín Sigurðardóttir hefur verið valin úr hópi níu umsækjenda til að taka við stöðu safnstjóra Listasafns Reykjavíkur. Listasafnið er rekið í þremur húsum; Hafnarhúsinu, Kjarvalsstöðum og Ásmundarsafni auk þess að bera ábyrgð á umsjón útilistaverka í eigu borgarinnar.

Ráðningin er til fimm ára og tekur Ólöf Kristín við stöðunni 1. september nk. þegar Hafþór Yngvason lætur af störfum eftir 10 ára starf.

Frá árinu 2008 hefur Ólöf Kristín gegnt stöðu forstöðumanns Hafnarborgar, menningar- og listamiðstöðvar Hafnarfjarðar þar sem hún er listrænn stjórnandi og ber ábyrgð á sýningadagskrá og annarri faglegri starfsemi safnsins svo sem fræðsludagskrá, tónleikum og öðrum menningarviðburðum. Sem stjórnandi Hafnarborgar hefur hún jafnframt borið ábyrgð á stefnumótun, stjórnun, fjármálum, rekstri og allri stjórnsýslu er varðar safnið.
Undir stjórn Ólafar hefur Hafnarborg ótvírætt markað sér sterkari sess í íslensku menningarlífi m.a. með fjölbreyttum og metnaðarfullum sýningum, fræðslustarfi, tónleikum og öðrum viðburðum sem eiga erindi við samtímann, spyrja spurninga og veita innsýn í margbreytilegan heim lista, að því er segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Ólöf var um árabil deildarstjóri fræðsludeildar Listasafns Reykjavíkur; bar ábyrgð á stefnumótun, skipulagi og framkvæmd fræðslustarfs safnsins, sat í sýningarnefnd safnsins og kom þannig að því að móta sýningarstefnu þess auk þess að vera sýningarstjóri á annan tug sýninga.

Ólöf Kristín útskrifaðist frá School of the Art Institute of Chicago árið 2003 með meistaragráðu í stjórnun listasafna og sýningargerð (Arts Administration) en í því skarast þrjár fræðigreinar; menningarstjórnun, safnafræði og listfræði. Hún útskrifaðist úr málaradeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1989 og hefur jafnframt lagt stund á nám í listasögu og heimspeki á Ítalíu og við Háskóla Íslands.

Samhliða stjórnunarstörfum á sviði myndlistar og menningar hefur Ólöf sinnt kennslu og ýmsum trúnaðarstörfum innan myndlistarheimsins, háskólasamfélagsins og fyrir safnamenn. Þar á meðal má nefna formennsku Íslandsdeildar ICOM – Alþjóðaráðs safna, setu í Myndlistarráði og setu í stjórn Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar sem ber ábyrgð á vali fulltrúa og framkvæmd þátttöku Íslands í Feneyjatvíæringnum, segir í tilkynningu.

Niðurstaða ráðningarnefndar, sem í sátu Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri Menningar- og ferðamálasviðs, Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands, og Kjartan Örn Ólafsson, framkvæmdastjóri Volta ehf. og formaður stjórnar Listahátíðar í Reykjavík, og ráðgjafar Capacent, sem sá um ráðningarferilinn, var því að Ólöf Kristín Sigurðardóttir mæti afar vel kröfum Reykjavíkurborgar um staðgóða þekkingu á sviði safnsins, meira en 5 ára reynslu af stjórnun og rekstri, leiðtogahæfni, frumkvæði og færni til að leiða þetta stærsta listasafn landsins áfram á farsælli braut. Jafnframt var haft samráð við menningar- og ferðamálaráð Reykjavíkur sem fagnar ráðningunni, segir ennfremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert