Hvetur ráðherra til að auka kvóta

Ásthildur Sturludóttir er bæjarstjóri í Vesturbyggð.
Ásthildur Sturludóttir er bæjarstjóri í Vesturbyggð. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Bæjarráð Vesturbyggðar hvetur sjávarútvegsráðherra til að auka strandveiðikvóta um 2.000 tonn, úr 8.600 tonnum í 10.600 tonn á þessari vertíð. Þetta kemur fram í bókin sem bæjarráðið samþykkti á fundi sínum í dag. 

Þar segir að sérstakt strandveiðigjald skipti hafnarsjóð miklu máli, enda kalli fjölgun báta á mikla uppbyggingu í höfnum sveitarfélagsins. 

„Bæjarráð Vesturbyggðar hvetur sjávarútvegsráðherra til að auka strandveiðikvóta um 2000 tonn, úr 8600 tonnum í 10600 tonn á þessari vertíð. Á síðasta ári nam verðmæti strandveiðiafla í kringum 200 milljónir í Vesturbyggð. Var sveitarfélagið hæst yfir landið þegar kemur að strandveiðiafla. Sérstakt strandveiðigjald skiptir hafnarsjóð miklu máli enda kallar fjölgun báta á mikla uppbyggingu í höfnum sveitarfélagsins. Nú í byrjun maí eru um 35 bátar á strandveiðum frá Vesturbyggð og má ætla að sá fjöldi tæplega tvöfaldist á næstu mánuðum miðað við reynslu fyrri ára. Aukning strandveiðikvóta skiptir því gríðarlega miklu máli fyrir samfélögin á sunnanverðum Vestfjörðum,“ segir í bókun bæjarráðs. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert