Loka hálendisvegum

Eins og sjá á þessu korti eru margir vegir lokaðir.
Eins og sjá á þessu korti eru margir vegir lokaðir. Af vef Vegagerðarinnar

Byrjað er að loka hálendisvegum vegna hættu á vegaskemmdum. Til dæmis er búið að loka veginum í Laka (F-206) og Langavatnsvegi (553). Eins er allur akstur bannaður um Dettifossveg frá Ásbyrgi að Dettifossi (862) og Hólsfjallaveg (864).

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert