Töldu moskuna ógna öryggi

Íslenski skálinn. Moska Büchels verður í aflagðri kirkju frá 10. …
Íslenski skálinn. Moska Büchels verður í aflagðri kirkju frá 10. öld.

Leiðtogar múslíma í Feneyjum fagna framlagi Íslands á Feneyjartvíæringnum en það er verk listamannsins Cristoph Büchel. Verkið nefnist Fyrsta moskan í Feneyjum. En borgaryfirvöld í Feneyjum fögnuðu hins vegar ekki og töldu það ógna öryggi í Feneyjum.

Ítarleg umfjöllun er um verk Svisslendingsins í New York Times í dag en þar kemur fram að lítill áhugi hafi verið á hugmynd Büchel um að breyta kirkju í mosku í myndlistartvíæringnum. Enginn hafi viljað fara í samstarf með honum og eftir nokkurra mánaða leit hafi tekist að leigja litla kaþólska kirkju til verksins, Santa Maria della Misericordia. En kirkjan hefur ekki verið notuð í trúarlegum tilgangi í meira en fjörtíu ár og er í eigu ljósafyrirtækis. En að sögn NYT voru erfiðleikar hans þar rétt að byrja.

Mátti ekki breyta kirkjunni að utan

Á fundum með leiðtogum Feneyja, lögreglu og yfirmönnum Tvíæringsins var Büchel tjáð að hann mætti ekki gera tímabundnar breytingar á kirkjunni að utan, meðal annars að setja áletrunina Allahu akbar á arabísku við inngang hennar.

Um miðjan apríl sendu yfirvöld í Feneyjum bréf til Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar (KÍM) sem sér um skipulagningu íslenska skálans, þar sem varað er við því að moskan geti ógnað öryggi í Feneyjum. Erfitt sé að fylgjast með kirkjunni vegna staðsetningu hennar og slíkt eftirlit sé nauðsynlegt að teknu tilliti til ástandsins alþjóðlega og mögulega hættu á árásum öfgahópa. Samkvæmt frétt NYT þá hafa yfirmenn tvíærings haldið sig í ákveðinni fjarlægð frá framlagi Íslands í ár en Feneyjartvíæringurinn verður opnaður fyrir almenning þann 9. maí nk.

Ætlað að tala til múslíma í Feneyjum

Í fréttatilkynningu sem er birt á vef menntamálaráðuneytisins segir:

Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar (KÍM), í samstarfi við mennta- og menningarmálaráðuneytið, kynnir með stolti MOSKUNA – Fyrsta moskuna í Feneyjum, íslenska skálann á 56. Feneyjatvíæringnum (La Biennale di Venezia) 

„MOSKAN – Fyrsta moskan í Feneyjum er verk unnið að frumkvæði listamannsins Cristoph Büchel í samstarfi við félög múslima í Feneyjum og á Íslandi, en sýningarstjóri er Nína Magnúsdóttir. Verkinu er ætlað að tala til þeirra þúsunda múslima í Feneyjum, sem koma frá 29 löndum, en einnig að bjóða jafnt velkomna heimamenn í Feneyjum og ferðamenn, þ.m.t. þúsundir múslímskra ferðamanna sem árlega sækja borgina heim.

MOSKAN verður sett upp í hinni fornfrægu kirkju Santa Maria della Misericordia í Cannaregio hverfinu. Kirkjan er frá 10. öld og var gerð upp árið 1864, en hún hefur ekki verið opin almenningi síðastliðin 40 ár. Þá sjö mánuði meðan á tvíæringnum stendur mun kirkjan vera miðstöð fyrir ýmsa starfsemi samfélags múslima í Feneyjum og verður þar boðið upp á fræðslu- og menningardagskrá fyrir almenning.

MOSKAN verður opin almenningi frá og með 9. maí 2015.

Cristoph Büchel steypir grunn að hugmyndafræði verksins í sögulegt samhengi við þau gríðarlegu áhrif sem íslömsk menning hefur haft á Feneyjar og þær félags- og stjórnmálalegu skírskotanir hnattrænna búferlaflutninga samtímans. Feneyjar hafa um aldir átt mikil viðskipti og vensl við Mið-Austurlönd og hefur auðgast og mótast af arabískri list, arkitektúr og tungu. Í borginni var áður bænaaðstaða fyrir múslima (var þó ekki formleg moska) sem komið var á fót árið 1621 í rými innan þrettándu aldar glæsihýsis sem nú kallast Fondaco dei Turchi. Þrátt fyrir þessi nánu tengsl við múslima hefur Feneyjaborg aldrei veitt leyfi fyrir byggingu mosku í sögulega hluta borgarinnar. Cannaregio svæðið, sem skálinn er staðsettur innan, er samliggjandi gamla gyðingahverfi (e. Jewish Ghetto) borgarinnar, þar sem langvarandi pólitískar hömlur varðandi rétt og búsetuskilyrði gyðinga voru leiddar í lög árið 1516. Þessi lög tóku einnig til múslímskra kaupmanna á 17. öld og var þeim gert að stunda sitt bænahald og búskap aðskildir frá öðrum borgurum. Enska orðið ghetto má raunar rekja til feneyska orðsins „ghèto“ sem notað var yfir gjall í smiðju sem staðsett var í hverfinu.

Enn þann dag í dag vekur bygging moskna deilur í löndum víða um heim. Ísland er það land með hvað lægst hlutfall innflytjenda í hinum vestræna heimi en framlag þess á tvíæringnum að þessu sinni, MOSKAN, skírskotar sérstaklega til samfélags múslima í Reykjavík. Félag múslima á Íslandi er smám saman að verða hluti af íslensku samfélagi og eftir tólf ár af pólitískum umræðum og deilum í fjölmiðlum er loks að hefjast undirbúningur við byggingu fyrstu mosku höfuðborgarinnar.

Í samhengi sem þessu er verkinu MOSKAN – Fyrsta moskan í Feneyjum, ætlað að draga athygli að stofnanavæddum aðskilnaði og fordómum í samfélaginu ásamt þeim deilum sem spretta af stefnumörkun stjórnvalda varðandi fólksflutninga sem eru þungamiðjan í þjóð- og trúarlegum ágreiningi víða um heim.

Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra lét frá sér eftirfarandi: „Frá upphafi landnáms hér á landi á 9. öld og vel fram á 20. öld var íslenska þjóðin samsett af einsleitum hópi fólks sem lifði á náttúruauðlindum landsins í því harðbýla umhverfi sem við þekkjum hér í Norður-Atlantshafi. Á síðustu áratugum hefur landið verið auðgað af innflytjendum víðsvegar að úr heiminum og þannig örvað samtal um hin ýmsu mál, byggt á umburðarlyndi gagnvart mismunandi trúarbrögðum sem mikil áhersla er lögð á í samfélagi okkar. Samfélag múslima á Íslandi er mikilvæg rödd í þessu samtali og er það von mín að verk Cristoph Büchel í íslenska skálanum, MOSKAN – Fyrsta moskan í Feneyjum, á Feneyjatvíæringnum muni verða jákvætt innlegg í þessa umræðu á heimsvísu,“ segir á vef menntamálaráðuneytisins. 

Vekur athygli á málefnum tengdum Íslandi og Feneyjum

„Mohammed Amin Al Ahdab, formaður Félags múslima í Feneyjum sagði: „Nýverið höfum við séð fjölmörg uppörvandi merki um opnara og skilningsríkara viðhorf borgarstjórnar okkar og yfirvalda almennt í borginni – jafnt borgaralegum sem trúarlegum. En með dýpt, sannleika og visku að leiðarljósi er framlag íslensku vina okkar á Feneyjatvíæringnum ein mesta vísbending hingað til um að skrifa megi bjartan og nýjan kafla í sögu Feneyjaborgar með nýju listformi – list sem er ekki einungis takmörkuð við málverk eða höggmyndir, heldur list sem mætir kalli nútímans um samtal.“

 Á kirkjustæðinu í Cannaregio geta gestir MOSKUNNAR skoðað hluti sem tengjast bænahaldi múslima, svo sem qibla vegg, mihrab, minbar og stórt bænateppi sem vísar í átt að Mekka, en öllu er þessu stillt upp inni í kaþólskum arkitektúr Santa Maria della Misericordia og þannig skapast sjónræn hliðstæða sem sýnir lagskiptingu sögunnar, trúarbragða og menningar sem hefur stuðlað bæði að framförum og átökum.

Feneyjar voru miðstöð viðskipta við Miðjarðarhaf frá 13. öld og fram á þá fimmtándu, á tímum uppgangs Ottómanveldisins. Margslungin trúarleg og pólitísk mál einkenndu sögu Feneyja sem reyndi á menningarlega jafnvægislist milli austurs og vesturs. Stöðug og fjölbreytt samskipti í viðskiptum og menningu milli Feneyja og austursins urðu til þess að borgin var um aldir þungamiðja verslunar í heiminum, og sá ferðamannastaður sem hún er í dag. Ummerki íslamskra áhrifa má sjá um alla borg, enda er einstakur og víðfrægur arkitektúr borgarinnar blanda af vestrænum og austrænum byggingarstíl. Feneyska mállýskan er hlaðin arabískum orðum og áherslum. Fyrsti Kóraninn á arabísku sem prentaður var í prentsmiðju kom út í Feneyjum um 1537-38 og eina varðveitta eintakið sem til er nú af þessari prentun er að finna í Feneyjum.

MOSKAN vekur einnig athygli á málefnum sem tengja Feneyjar og Ísland og móta samtal um framtíð hvorrar borgar fyrir sig. Í Feneyjum hafa sprottið upp vandamál í tengslum við viðskiptavæðingu menningar, fullmettaðan ferðamannamarkað og sífellda fækkun innfæddra sem felur í sér hættu á stöðnun í borginni. Á Íslandi má finna hliðstæður í tengslum við mikinn vöxt ferðamanna síðustu árin, viðskiptavæðingu og ofnýtingu náttúrunnar og lágt hlutfall innflytjenda.

MOSKUNNI er ætlað að styrkja tengsl og stuðning milli félaga múslima á Íslandi og í Feneyjum. Dagskráin býður meðal annars upp á íslenskukennslu og upplýsingar fyrir íbúa Feneyja sem hafa áhuga á að flytjast búferlum til Íslands. Á sýningartímanum stendur almenningi, þ.m.t. íslenskum ríkisborgurum, til boða að velta fyrir sér menningarlegum, sögulegum og félagspólitískum kerfum sem skilgreina samtímann og hvetja til samtals um þau tækifæri og áskoranir sem verða til þegar þau greinast. MOSKAN er birtingarmynd lagskiptingar menningarheima og þeirrar hugmyndafræði sem hefur mótað Feneyjar og opnað fyrir margar af stærstu samfélagslegu spurningum samtímans.

Björg Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri KÍM, segir: „Feneyjatvíæringurinn hefur alltaf veitt góða innsýn inn í stöðu samtímamyndlistar í heiminum og verið vettvangur þar sem mörk listarinnar eru könnuð til hins ýtrasta. Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar kynnir með stolti verk listamannsins Cristoph Büchel, MOSKAN, sem framlag íslenska skálans á Feneyjatvíæringnum 2015. Verk Cristoph veitir okkur tækifæri til að koma á samtali og samskiptum á milli menningarheima sem mikil þörf er á bæði á Íslandi og víðar.“

„Við erum stolt að styðja við MOSKUNA, framlag Íslands til Feneyjatvíæringsins,“ segir Sverrir Agnarsson, formaður Félags múslima á Íslandi. „Það er einkar viðeigandi að þetta verk skuli vera sett fram á sama tíma og mikil umræða á sér stað um byggingu fyrstu moskunnar í Reykjavík. Fordómar og pólitískur þrýstingur gerðu það að verkum hér áður fyrr, bæði á Íslandi og á Ítalíu, að óhugsandi þótti að ímynda sér moskur á hvorum staðnum. En nú, þegar íslenski skálinn er að taka á sig lokamynd, stöndum við í Félagi múslima á Íslandi fyrir hönnunarsamkeppni meðal fremstu arkitekta Evrópu og höldum áfram áformum um byggingu fyrstu moskunnar í nyrstu höfuðborg heims. Það er von okkar – InshaAllah – að verkefni sem þessi leiði til líflegrar starfsemi múslima um heim allan og ánægjulegri og aukinna, friðelskandi samskipta milli okkar allra í Feneyjum, Reykjavík og borga um allan heim.“ 

MOSKAN er styrkt af mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Einnig naut verkið stuðnings Juan Carlos Verme og Joel Yoss, Hauser & Wirth, Ingunnar Wernersdóttur, Íslandsstofu og Pro Helvetia,“ segir enn fremur á vef menntamálaráðuneytisins.

 Frétt mbl.is: Moska í ís­lenska skál­an­um á Fen­eyjat­víær­ingn­um

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert