Óskar eftir endurupptöku Al Thani málsins

Ólafur Ólafsson hlaut fjögur og hálft ár.
Ólafur Ólafsson hlaut fjögur og hálft ár. mbl.is/Þórður

Ólafur Ólafsson hefur óskað eftir því við endurupptökunefnd að hæstaréttarmál nr. 145/2014, Al Thani málið svokallaða, verði tekið til meðferðar og dómsuppsögu að nýju hvað hann varðar. Helsta ástæðan fyrir beiðninni er sú að í dómi Hæstaréttar voru sönnunargögn í málinu ranglega metin. Það hafði veigamikil áhrif á niðurstöðu dómsins sem dæmdi Ólaf til fjögurra og hálfs árs fangelsisvistar fyrir markaðsmisnotkun, segir í tilkynningu frá Ólafi og lögmanni hans, Þórólfi Jónssyni, hæstaréttarlögmanni.

Þórólfur sendi bréf til endurupptökunefndar fyrir helgi en hana skipa þau Björn L. Bergsson,  hrl., formaður, tilnefndur af Hæstarétti. Elín Blöndal lögfræðingur, kosin af Alþingi og Þórdís Ingadóttir dósent, tilnefnd af dómstólaráði. Í samtali við mbl.is segir Þórólfur ekki ljóst á þessari stundu hvenær mál Ólafs verði tekið upp hjá nefndinni en hann vonar að það verði sem fyrst. Meðal annars er óskað eftir því í bréfi til nefndarinnar að refsingu Ólafs verði frestað á meðan meðferð beiðnarinnar stendur en hann afplánar nú fjögurra og hálfs árs fangelsisdóm á Kvíabryggju.

Ekki rétti „Ólinn“

„Að mati Ólafs lagði Hæstiréttur rangt mat á símtal tveggja manna, þar sem annar vísar til samtals við ótilgreindan mann sem kallaður var „Óli“, um tiltekna þætti viðskiptanna sem málið tók til. Í vitnisburðum fyrir héraðsdómi og öðrum sönnunargögnum málsins kemur skýrt fram að þarna var átt við Ólaf Arinbjörn Sigurðsson lögmann. Þrátt fyrir þessa staðreynd telur Hæstiréttur að vísað hafi verið til Ólafs Ólafssonar.

Um grundvallaratriði er að ræða. Af umræddu símtali er sú ranga ályktun dregin að Ólafur Ólafsson hafi verið upplýstur um tiltekna þætti viðskiptanna, þrátt fyrir að fyrirliggjandi gögn sýni annað. Ekkert annað í málinu sýnir fram á meinta vitneskju Ólafs um þessi atriði. Þessi ranga forsenda er hornsteinninn að sakfellingu Ólafs í dómi Hæstaréttar sem telur að á grunni símtalsins sé hafið yfir skynsamlegan vafa að Ólafur Ólafsson skyldi njóta arðs til jafns við Al Thani.

Verjendur höfðu ekki tækifæri til þess að leiðrétta þessi mistök Hæstaréttar því símtalið var ekki tekið til efnislegrar meðferðar í málflutningnum, fyrirliggjandi gögn bentu ekki til þess að vafi ríkti um þetta atriði og ekkert gaf til kynna að dómararnir skildu efni símtalsins með öðrum hætti en héraðsdómur, ákæruvald, verjendur og ákærðu.

Það er grundvallaratriði þegar einstaklingur er dæmdur í fangelsi að það sé gert á réttum forsendum og forsvaranlegu mati á gögnum málsins. Það var ekki raunin í þessu máli, a.m.k. hvað þetta varðar, og er því beiðst endurupptöku málsins,“ segir í tilkynningu.

Á hverju ári koma nokkur mál til kasta endurupptökunefndar en í ár hefur nefndin kveðið upp átta úrskurði. Í öllum tilvikum nema í einu er endurupptöku hafnað.

Í efri röð eru þeir Sigurður Einarsson og Hreiðar Már …
Í efri röð eru þeir Sigurður Einarsson og Hreiðar Már Sigurðsson. Í þeirri neðri eru Magnús Guðmundsson og Ólafur Ólafsson. mbl.is/Kristinn
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert