Rannsaka alvarlega líkamsárás

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú alvarlega líkamsárás sem átti sér stað í Iðufelli í Breiðholti síðdegis í gær. Þrír menn gengu í skrokk á manni fyrir allra augum úti á götu. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu verst allra frétta af málinu að svo stöddu.

Slógu þeir manninn með járnröri og spörkuðu til hans þar sem hann lá á jörðinni. Lögregla kom fljótlega á vettvang og handtók árásarmennina þrjá. Þolandinn var fluttur á slysadeild með áverka.

Fram kom í frétt DV í gær að um hafi verið að ræða uppgjör á skuld og að viðkomandi þolandi hafi orðið fyrir slíkum innheimtuaðgerðum áður.  

Frétt mbl.is: Alvarleg líkamsárás í Fellunum

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka