Fögnuðu 40 ára afmæli með glans

Ölduselsskóli í Breiðholti er 40 ára gamall í ár og í tilefni af því var haldin stórkostleg hátíð í skólanum í gær. Á skólalóðinni og inn í skólanum voru grillaðar pylsur, boðið upp á candyflos og risastóra afmæliskaka, djús og mjólk. Jafnframt voru hoppukastalar á svæðinu,  bubbluboltar og kajakar í sundlaug skólans. 

Einnig var boðið upp á hjólaskoðun, skothraði mældur, teygjutvist og snúsnú. Nemendur sungu jafnframt á útisviði og í íþróttasal við mikinn fögnuð viðstaddra.

Ljósmyndari mbl.is var á staðnum og fangaði gleðina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert