Umferð um Dyrhólaey takmörkuð

Umhverfisstofnun hefur ákveðið að frá og með deginum í dag til 25. júní næstkomandi verði umferð almennings einvörðungu heimil um Lágey og Háey milli kl. 09:00 og 19:00 eftir merktum göngustígum og akvegum.

Á kvöldin er friðlandið lokað á næturnar frá klukkan 19:00 til klukkan 09:00. Lokunin er vegna fuglavarps í eynni, ekki síst æðarfugls. Þetta kemur fram á vef Umhverfisstofnunar.

Frá klukkan 09:00 þann 25. júní 2015 verður friðlandið opið allan sólarhringinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert