Óska eftir vitnum að umferðarslysi

mbl.is/Sigurður Bogi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem átti sér stað á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar í dag um kl. 13:00. Var bifreið þar bakkað á gangandi vegfaranda sem leið átti yfir gatnamótin. Þeir sem hafa upplýsingar um málið eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444 1000.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert