Á ofsahraða á Reykjanesbraut

mbl.is/Sigurður Bogi

Ellefu ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á síðustu dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 166 km hraða á Reykjanesbraut, þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. 

Hann var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða á lögreglustöð, auk þess sem hann þarf að greiða 150.000 króna fjársekt og fær þrjá refsipunkta í ökuferilsskrá. Annar ökumaður mældist á 162 km hraða og sá þriðji ók á 157 km hraða. Aðrir óku ekki eins hratt en þó vel yfir hámarkshraða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert