Alvarlegt slys við Hellissand

Lögregla og sjúkralið eru á vettvangi.
Lögregla og sjúkralið eru á vettvangi. mbl.is/Alfons

Alvarlegt slys varð við Hellissand á Snæfellsnesi í morgun er jeppi valt á veginum. Sjúkrabíll og tækjabíll frá slökkviliði eru á staðnum. Fimm erlendir ferðamenn voru í bílnum og eru tveir taldir alvarlega slasaðir, samkvæmt upplýsingum fréttaritara mbl.is sem er á staðnum.

Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leiðinni á staðinn.

Uppfært 10.55: Þyrla Gæslunnar er á leið með slasaða á Landspítalann í Reykjavík.

mbl.is/Alfons
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert