Geta ekki byggt vegna lóðaskorts

Stór hluti íbúða í þessari blokk á Bjarkarvöllum er þegar …
Stór hluti íbúða í þessari blokk á Bjarkarvöllum er þegar seldur. mbl.is/Baldur Arnarson

Tveir verktakar sem Morgunblaðið ræddi við segjast mundu byggja fleiri fjölbýlishús í Vallahverfi í Hafnarfirði ef þeir fengju lóðir í hverfinu.

Þótt nýjar íbúðir seljist hratt úthluti Hafnarfjarðarbær ekki lóðum, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Má ætla að þessi skortur ýti að óbreyttu undir framboðsvandann á húsnæðismarkaði á höfuðborgarsvæðinu á næstu misserum. Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, segir bæjarfélagið líklega ekki munu geta úthlutað fleiri lóðum í ár.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert