„Pólitískt einelti þykir sjálfsagt“

Karl Garðarsson alþingismaður.
Karl Garðarsson alþingismaður. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Þetta er umræða sem lítur stjórn örfárra einstaklinga sem lítið annað virðast hafa fyrir stafni en að dreifa óhróðri um nafngreinda einstaklinga. Viðhlæjendur eru hins vegar margir,“ segir Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, á vefsíðu sinni í dag þar sem hann gerir að umtalsefni sínu þjóðfélagsumræðuna sem fyrst og fremst fari fram á netinu. Þar sé allt leyfilegt

„Það þarf aldrei að færa sönnur eða standa skil á hástemmdum yfirlýsingum um nafngreinda einstaklinga. Þetta er umræða þar sem illmælgi og hatur ræður ríkjum og pólitískt einelti þykir sjálfsagt,“ segir Karl. Hann segir þessa umræðu beinast þessa dagana einkum að Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra. Þegar hann sé annars vegar sé allt leyfilegt og oftar en ekki ráðist að honum persónulega.

„Ráðherrar þurfa vissulega að geta tekið gagnrýni, en hún þarf að vera heiðarleg og málefnaleg. Og hún á síst að öllu að beinast að persónu viðkomandi. Ef menn reyna að bera hönd fyrir höfuð sér eru þeir sakaðir um að vera hörundsárir og kunna ekki að taka gagnrýni. Þannig er tryggt að hatursumræðan fái að halda áfram og lifi sjálfstæðu lífi,“ segir hann.

Karl lýkur skrifum sínum með þeim orðum að umræða sé góð og það sama eigi við um gagnrýni. Hatur og einelti sé hins vegar engum til góðs. „Línan þar á milli getur verið fín – en hún er til. Við erum komin langt út fyrir það sem eðlilegt getur talist.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert