Samanburður Augljós ekki villandi

Sjónlag taldi markaðssetningu Augljóss vera ranga, ófullnægjandi og villandi og …
Sjónlag taldi markaðssetningu Augljóss vera ranga, ófullnægjandi og villandi og til þess fallna að hafa áhrif á eftirspurn eftir laseraðgerðum Augljóss, ranglega á kostnað keppinauta félagsins. Myndin er úr safni. mbl.is/Sverrir

Neytendastofu barst kvörtun frá Sjónlagi yfir samanburðarauglýsingu Augljóss þar sem borin voru saman verð á laser augnaðgerðum. Taldi Sjónlag auglýsinguna villandi og ósanngjarna bæði gagnvart neytendum og keppinautum m.a. þar sem bornar voru saman aðgerðir framkvæmdar með ólíkum aðferðum.

Neytendastofa féllst ekki á athugasemdir Sjónlags og taldi ekki ástæðu til að grípa til aðgerða vegna auglýsingarinnar. Í ákvörðuninni er um það fjallað að Neytendastofa telji að um sambærilegar aðgerðir sé að ræða þrátt fyrir að notast sé við ólíkar aðferðir við gerð flipa á hornhimnu.

Telur Neytendastofa að aðgerðirnar fullnægi sömu þörfum og séu staðgönguþjónusta við hvor aðra.

Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert