Bjóða út gönguleiðir fyrir 120 milljónir

mbl.is/Styrmir Kári

Borgarráð hefur samþykkt að heimila umhverfis- og skipulagssviði að bjóða út framkvæmdir við gönguleiðir fyrir um 120 milljónir króna.

Um er að ræða aðgerðir sem tengjast lækkun á umferðarhraða við gönguþveranir og er aðgerðunum ætlað að auka öryggi gangandi vegfarenda.

Framkvæmt verður á 65 stöðum víðs vegar í borginni og settar sebragangbrautir  á upphækkaðar gönguþveranir auk  viðbótarskilta í eftirtöldum hverfum þar sem hámarkshraði er 30 kílómetrar á klukkustund; Laugarnesi, Langholtshverfi, Grafarvogi. Grafarholti. Breiðholti og Kjalarnesi.

Sérstök áhersla  er lögð á að bæta öryggi á gönguleiðum skólabarna, segir í frétt Reykjavíkurborgar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert