Eldur í bíldekki

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um fjögurleytið í nótt að Suðurlandsbraut, skammt frá Mörkinni, vegna reyks sem lagði yfir.

Í fyrstu var talið að kviknað hefði í gróðri en í ljós kom að eldur logaði í bíldekki og gekk greiðlega að slökkva eldinn, að sögn varðstjóra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert