Hótað vægðarlausri umfjöllun

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Upplýsingar sem nefndar voru í bréfi sem barst forsætisráðherra í tilraun til fjárkúgunar virðast byggja á getgátum og sögusögnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni.

Þar segir einnig að því hafi verið hótað að ef ekki yrði gengið að kröfunum eða lögreglu gert viðvart, fengju fjölmiðlar málið til umfjöllunar og að tryggt yrði að hún yrði „öll hin versta“.

Bréfið var stílað á eiginkonu Sigmundar og er fjölskyldunni verulega brugðið vegna málsins.

Tilkynning forsætisráðherra í heild:

„Fyrir fáeinum dögum barst bréf á heimili fjölskyldu minnar, í umslagi merktu eiginkonu minni. Í bréfinu var því hótað að birtar yrðu opinberlega upplýsingar sem reynast myndu skaðlegar ef ég greiddi ekki milljónir króna til bréfritara og samverkamanns hans.

Af bréfinu að dæma virtust umræddar upplýsingar byggja á getgátum og sögusögnum. Áréttað var í bréfinu a ð ef ekki yrði gengið að kröfunum, eða ef lögreglu yrði gert viðvart, yrði séð til þess að fjölmiðlar fengju málið til umfjöllunar og sagðist bréfritari geta tryggt að sú umfjöllun yrði öll hin versta.

Ég gerði lögreglu að sjálfsögðu strax viðvart og leysti hún málið af mikilli fagmennsku. Ég vil færa lögreglunni kærar þakkir fyrir vel unnin störf.

Vegna frétta sem birst hafa um málið í dag með vísan til hótananna er rétt að taka fram að ég hef engin fjárhagsleg tengsl við Björn Inga Hrafnsson, né hef ég komið að kaupum Vefpressunnar á DV á nokkurn hátt.

Fjölskyldu minni er verulega brugðið vegna þessara atburða. Ég vil hvetja til hófstilltrar umræðu um málið og minni á að grunaðir gerendur eiga ættingja og vini sem liðið geta fyrir umfjöllunina.

Fjölmiðla bið ég að sýna skilning á því að ég mun ekki veita viðtöl um málið að minnsta kosti á meðan rannsókn þess er ekki að fullu lokið.“

Frétt mbl.is: Sendi ekki fjárkúgunarbréfið

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert